Einstakt verslunar- og skrifstofuhúsnæði í nálægð við atvinnulíf og náttúru
Fyrirhuguð er bygging skrifstofu- og þjónustuhúsnæðis við Krókháls 20 í Reykjavík. Þar mun skapast einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki að flytja starfsemi sína í umhverfi fjarri skarkala og nærri náttúru og útivistarsvæðum.
Úr byggingunni verður óviðjafnanlegt útsýni þar sem húsið stendur hátt í landinu og mun verða stakt við hliðina á golfvellinum í Grafarholti.
Mikill metnaður verður settur í hönnun hússins til þess að það falli að þeirri fágun og klassa sem staðsetningin gefur.
Áætlanir eru um að húsið verði um 11.000 fermetrar auk bílakjallara. Á neðstu hæð er gert ráð fyrir verslun og þjónustu en á efri hæðum verða skrifstofurými.
Nálægð við náttúruna getur veitt fyrirtækjum fjölmarga kosti, bæði þegar kemur að vellíðan starfsmanna, ímynd fyrirtækisins og möguleikum til að skapa sjálfbært og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
Einstakt húsnæði í nálægð við atvinnulíf og náttúru
Fyrirhuguð er bygging skrifstofu- og þjónustuhúsnæðis við Krókháls 20 í Reykjavík. Þar mun skapast einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki að flytja starfsemi sína í umhverfi fjarri skarkala og nærri náttúru og útivistarsvæðum.
Úr byggingunni verður óviðjafnanlegt útsýni þar sem húsið stendur hátt í landinu og mun verða stakt við hliðina á golfvellinum í Grafarholti.
Mikill metnaður verður settur í hönnun hússins til þess að það falli að þeirri fágun og klassa sem staðsetningin gefur.
Áætlanir eru um að húsið verði um 11.000 fermetrar með bílakjallara. Á neðstu hæðinni munu verða annaðhvort sýningarsalir fyrir bíla eða verslunarhúsnæði. Á efri hæðum verður 7-8.000 fm skrifstofuhúsnæði.
Nálægð við náttúruna getur veitt fyrirtækjum fjölmarga kosti, bæði þegar kemur að vellíðan starfsmanna, ímynd fyrirtækisins og möguleikum til að skapa sjálfbært og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
Tækifæri til mótunar
Unnið er að deiliskipulagi fyrir svæðið og í framhaldi fullnaðarhönnun. Fyrirtæki sem koma snemma inn í ferlið munu fá tækifæri til þess að koma að hönnun þess rýmis sem að þau hafa hug á að leigja. Þannig verður hægt að sérhanna húsnæðið samkvæmt hugmyndafræði og starfsemi þeirra fyrirtækja sem verða í húsinu.
Þá ber að nefna að útlit hússins eins og það kemur fyrir á myndunum á síðunni er einungis til viðmiðunar og gæti tekið breytingum í hönnunarfasanum.
Frábær staðsetning
Staðsetningin og gæði byggingarinnar mun gefa fyrirtækjum glæsilegt vinnuumhverfi. Aðgengi er gott þar sem umferð um Krókháls er létt. Engar áætlanir eru um frekari byggingar í nánasta umhverfi og er deiliskipulagið enn í mótum.
Upplagt tækifæri fyrir fyrirtæki sem vilja flytja sig úr stressinu, tengja sig náttúrunni og njóta fegurðar í vinnuumhverfi. Nálægð við náttúru gefur jafnframt fyrirtækjum fjölmarga kosti þar sem sýnt hefur verið fram á að starfsmenn eru ánægðari í náttúrulegu umhverfi og það gefur tækifæri til jákvæðrar ímyndar og sjálfbærni.
Skemmtileg samvinna
Byggingaraðilar eru í góðri samvinnu við nágranna sína og þá sérstaklega stjórnendur Golfklúbbs Reykjavíkur en uppi eru hugmyndir um að tengja saman bygginguna við völlinn t.d. með því að hvítir keppnisteigar verði hannaður inn í umhverfi hússins. Mun það gefa byggingunni skemmtilegt líf og breidd.
Myndefni og teikningar á síðunni eru einungis til viðmiðunar og sýna ekki endanlega hönnun.
Vefhönnun og vinnsla: ONNO ehf.